Skeljaræktun Coton de Tuléar & Pomeranian

Upplýsingar um hvolpa og got er hægt að fá í síma 8927966 og/eða senda mér email.

Ég heiti Margrét Haraldsdóttir og er framhaldsskólakennari. Ég bý í Mosfellsbæ og hef átt hunda frá barnsaldri. Ég hef ræktað hesta og var m.a. annars bóndi á Sperðli í V-Landeyjum í 7 ár.
Hugmyndafræði mín er að rækta falleg, heilbrigð dýr með góða skapgerð.

Ég hef átt Pomeranian síðan árið 2001, en á undan var ég með stærri hunda. Eftir að ég hætti í hestamennsku og flutti í bæinn leitaði ég að hundum sem hentuðu mér og borgarlífinu. Ég er mikið náttúrubarn og þarf sterkbyggða hunda sem eru þó það litlir að þeir henti borgarlífinu vel. Pomeranian er svarið. Hraustur hundur sem þolir vel íslenska veðráttu og getur auðveldlega fylgt mér hvert á land sem er. Það sem ég kemst komast þeir. Hundarnir eru líf mitt og yndi. Ég gæti ekki þrifist í borginni án þess að hafa garð og hunda

Ég legg mig fram um að rækta hunda og tel mig vera á góðri leið með að festa í sessi úrvalshunda frá Skeljaræktun.

  

Svo haustið 2007 fékk ég mér Coton de Tuléar innflutta frá Danmörku. Ég er ennþá að kynnast tegundinni og læra á þá, en þeir lofa góðu.

Haustið 2010 var Coton de Tulér tíkin Skelja Lukka valin Besti hundur sýningar. Það er örugglega mesti heiður sem nokkur ræktandi getur óskað sér.  Á myndinni sést vinkona mín og meðeigandi að Bandith og hirðljósmyndari Ingibjörg Atladóttir Þormar fagna með mér í úrslitum sýningar

Á haustsýningu 2010 var Skelja Princess Nala valin Besti unghundur sýningar.

Auk þess var ISCH Skelja Scartlett O´Hara valin 3.Besti hundur sýningar

Vorsýning REX 2009 Skeljaræktun Besti ræktunarhópur sýningar

CH Skelja Scarlett O´Hara er afrakstur af minni ræktun. Hún er dóttir Skelja Ramónu og TaBozi Wings OF Phoenix sem ég flutti inn frá Noregi. Hún hefur þrisvar verið valinn Besti hundur tegundar og er komin með tvö alþjóðleg stig  er íslenskur meistari. Eigandi hennar er Kristjana Ólöf Friðriksdóttir/Jón Helgi Daníelsson. Scarlett er gott dæmi um hunda sem ég vil rækta og hunda sem ég hef látið frá mér. Og eigendur sem hafa kunnað að meta gæðin og sýnt hana.